ÁSBYRGI FASTEIGNASALA EHF, INGILEIFUR EINARSSON, LÖGG. FASTEIGNASALI, GSM 894-1448, [email protected], KYNNIR: VAR AÐ FÁ Í EINKASÖLU MJÖG GÓÐA 3JA HERB. ÍBÚÐ Á 6. HÆÐ, ÁSAMT BÍLSKÚR, Á ÞESSUM EFTIRSÓTTA STAÐ. MIKIÐ ÚTSÝNI. LAUS FLJÓTLEGA. ÍBÚÐIN ER FYRIR 60 ÁRA OG ELDRI.
Birt stærð íbúðarinnar er skv. Fasteignaskrá HMS íbúð 75.6 fm og bílskúr 28.8 fm. Skipulag íbúðar: Gangur, góður skápur, parket. Baðherbergi: allt flísalagt, innrétting, sturtuklefi, tengi fyrir þvottavél, flísar á gólfi. Hjónaherbergi: gott, góðir skápar, parket. Eldhús: innrétting með ljósum viðarspæni, flísar á milli skápa, borðkrókur, parket, gluggi. Búr: innaf eldhúsi, hillur, parket. Stofa: stór og björt, parket. Gengt úr á stórar glerlokaðar suðursvalir. Herbergi: Þetta herbergi var sameinað stofunni og hún stækkuð um sem því nam. Lítið mál að setja upp nýjan millivegg. Í kjallara er sérgeymsla fyrir íbúðina og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Bílskúr: Fullbúinn með rafmangni, hita og heitu og köldu vatni. Hillur. Flísar á gólfi. Íbúðin er fyrir íbúa 60 ára og eldri. Þjónustumiðstöð fyrir aldraða er í Gullsmára 13, en þar er margþætt þjóusta.