Opið hús: 02. mars 2026 kl. 17:00 til 17:30.Opið hús: Hörðukór 1, 203 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 03 02. Eignin verður sýnd Monday 2. March 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
ÁSBYRGI FASTEIGNASALA, INGILEIFUR EINARSSON, LÖGG. FSTEIGNASALI, [email protected], KYNNIR: VAR AÐ FÁ Í EINKASÖLU GÓÐA 3JA HERB. ÍBÚÐ Á 3JU HÆÐ MEÐ SÉRMERKTU 02B10 STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU OG GLERLOKUÐUM SVÖLUM. MIKIÐ ÚTSÝNI. STUTT Í VERSLUN OG ÚTIVISTARSVÆÐI. ÍBÚÐIN GETUR VERIÐ LAUS FLJÓTLEGA.
Íbúðin nánar tiltekið eign merkt skv. Fasteignaskrá HMS. 03-02, fastanúmer 228-2695, birt stærð íbúðar 96,5 fm. þar af er geymsla 6.9 fm.
Skipulag íbújðarinnar:
Hol: skápur, flísar á gólfi.
Þvottaherbergi: innrétting, flísar á gólfi.
Baðherbergi: gott, allt flísalagt, innrétting, baðkar og sturtuklefi. Handklæðaofn.
Sjónvarpshol: rúmgott, parket.
Hjónaherbergi: rúmgott, góðir skápar, parket.
Herbergi: gott, skápur, parket.
Eldhús: opið inn í stofu, góð innrétting með eikarspæni, flísar á milli skápa, borðkrókur, parket.
Stofa: björt og rúmgóð, parket.
Svalir: Gengt úr stofu út á góðar suðvestur svalir með glerlokun og flísum á gólfi.
Geymsla: í kjallara að stærð 6,9 fm.
Í kjallara er að auki sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Mjög góð sameign.
Innangengt er úr lyftu í kjallara í bílageymslu. Nánari upplýsingar veitir Ingileifur Einarsson löggiltur fasteignasali, í síma 894 1448, netfang [email protected].